Samantekt upplýsinga
Hér má finna samantektir á upplýsingum sem má áframsenda við mismunandi tilefni.
Þessar samantektir eru studdar með ritrýndum greinum eða yfirlýsingum frá alþjóðlegum stofnunum eða heilbrigðisstofnunum eins og WHO.
Til dæmis þarf stundum að senda upplýsingar á vinnustaði, til skólans eða vegna heimilisaðstæðna.
Einnig er mikilvægt að bregðast rétt við vatnstjónum hjá tryggingafélögum og haa gátlista við hönd til þess að tryggja að öllum verkferlum varðandi rakaskemmdir sé fylgt við mat og viðgerðir.
Þessar samantektir munu safnast hér saman fyrir aðra að nota, fer eftir því hvað er tilbúið hverju sinni.
Einnig munu koma fram hér hugleiðingar í réttindamálum þeirra sem fást við rakaskemmdir og heilsu.