Raki og mygla

Myglusveppir eru hluti náttúrulegs umhverfis og eru mikilvægir við niðurbrot og endurnýjun næringarefna í náttúrunni. Menn, myglusveppir og bakteríur hafa lifað saman frá örófi alda og á meðan jafnvægi ríkir lifa allir saman í ,,sátt“. Ef jafnvægið raskast fer eitthvað úrskeiðis. Það á til dæmis við ef raki í byggingaefnum verður nægilegur til þess að mygla nái að vaxa upp í húsunum okkar. Þar er annað umhverfi en utandyra, samkeppni af öðrum toga og oft ofgnótt af æti. Einnig má reikna með uppsöfnun á afleiðuefnum rakaskemmda í þéttum húsum þar sem loftskipti eru takmörkuð. Að minnsta kosti verður meiri styrkur þessara efna innandyra en úti.

Heilsuspillandi umhverfi
Samkvæmt skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (AHS/WHO) frá 2009 þá eru raki og mygla í byggingum áhættuþáttur heilsu manna. Tengslin eru þekkt en orsakasamhengið er ekki að fullu ljóst. Eftir vatnsskaða í byggingum verður uppsöfnun á efnum í innilofti frá örverum og byggingarefnum og loftgæði spillast. Má í stuttu máli nefna útgufun frá byggingarefnum , bakteríur, geislabakteríur, smádýr, mítla og fjölmargar tegundir myglusveppa sem geta framleitt skaðleg eiturefni.

Það er óljóst hvaða hlutverk þessi eiturefni (mycotoxin) hafa í heilsufarseinkennum en rannsóknir hafa sýnt fram á möguleg áhrif á samskipti fruma í taugakerfi og öndunarvegi. Það hefur verið sýnt fram á að það er aukið magn þessara efna í rakaskemmdu húsnæði en ekki eru þekkt viðmið við innöndun.

Einkenni sem eru annað hvort sýnileg eða mælanleg eru frá öndunarfærum, tíðar sýkingar, meltingarfæraóregla og húðkvillar. Önnur einkenni sem erfitt er að mæla og meta eru sett undir eitt nafn, húsasótt. Á meðal þeirra eru flensulík einkenni, þreyta, orkuleysi, þunglyndi, höfuðverkur, liðverkir, verkir, áreiti í augum, truflanir í ónæmiskerfi og önnur óútskýrð veikindi. Þegar talað er um húsasótt er átt við einkenni sem má tengja við veru í ákveðnu húsnæði. Eitt er þó ljóst að rannsóknir sýna að meiri líkur eru á heilsukvillum í röku húsnæði en þurru. Í því liggja möguleikar til forvarna og lýðheilsuðagerða í okkar samfélagi.

Forvarnargildið er ótvírætt.
Fyrirbyggjum leka, minnkum áhættu af raka, lagfærum og stöðvum rakaupptök og fjarlægjum rök og mygluð byggingarefni. Þannig lágmörkum við heilsufarslega áhættu af húsnæði. Til þess að ná árangri er mikilvægt að fagstéttir í heilbrigðis- og byggingageiranum beri saman bækur sínar og vinni að sameiginlegu markmiði.

Hvernig þekki ég myglu?
Mygla sem vex á byggingarefnum er oft á tíðum keimlík þeirri myglu sem við þekkjum vel á brauðhleif eða sultu. En oftast er myglan ekki augljós við sjónræna skoðun enda þarf hún ekki sólarljós til þess að vaxa eins og plöntur og þrífst því vel innan í veggjum, undir gólfefnum, á málningu eða veggfóðri. Hún getur haft marga liti; grá, svört, brún, hvít, gul, bleik, græn og jafnvel rauðbrún. Stundum er erfitt að aðgreina myglu frá útfellingu efna úr steypu og frá lími undir dúkum. Þumalputtareglan er sú að ef leki hefur verið til staðar lengur en í eitt stakt skipti eða viðvarandi þá má reikna með að finna myglu og/eða bakteríur. Algengast er að finna slíkar aðstæður í spónaplötum, krossvið, lími undir dúkum, undir málningu, í timbri, fúguefnum, þéttiefnum, veggfóðri, pappír og lími á gifsplötum. Auðvelt er að villast á myglu og mislitun vegna bruna, efnaútfellingar, sandmengunar, olíusmits eða tjörulitunar.

Hvar finnst mygla?
Myglusveppir fjölga sér með gróum. Myglugró finnast alls staðar en myglan nær aðeins að vaxa þar sem gró finna hagstæð skilyrði til vaxtar. Fyrst og fremst þar sem er raki og æti. Gró myglusveppa berast um allt með lofti, vatni og dýrum. Það er því óhjákvæmilegt að gró myglusveppa lendi inn í veggjum og undir gólfefnum þegar við erum að byggja húsin okkar eða breyta. Gróin liggja þar í dvala uns aðstæður breytast vegna leka eða rakaþéttingar og vaxa upp og mynda myglu. Myglusveppir eða mygla getur nýtt sér til ætis bæði ryk á gleri og í holrýmum steypu og getur því vaxið á ólíklegustu stöðum. Flestir myglusveppir ná að fjölga sér hratt og verða grómyndandi innan tveggja sólarhringa. Þessi tími, 48 klukkustundir, er því sá viðbragðstími sem við höfum til þess að þurrka upp eftir vatnstjón og leka. Myglusveppagró og jafnvel mygla finnast án efa í einhverju magni í öllum húsum á Íslandi; þéttiefni við baðkar, gluggakarmar í snertingu við raka steypu og við rúður, en hún verður að vandamáli þegar rakaálag er eða hefur verið óeðlilega mikið. Þá geta komið fram einkenni húsasóttar og lífsgæði íbúa skerðast.

Rakamæling og saga húss
Mikilvægt er að þekkja sögu hússins og hafa rakamæli sem mælir raka í byggingarefnum við raka- og mygluleit. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (AHS) hefur ekki gefið út viðmiðunarmörk sem teljast heilsuspillandi á magni myglu eða tiltekið hvaða tegundir eru varasamari en aðrar. Í leiðarvísi AHS kemur fram að í heilsufarslegu tilliti skal koma í veg fyrir aðstæður þar sem rakasæknar örverur geta vaxið upp og fjarlægja mygluð og rakaskemmd byggingarefni þar sem myglu verður vart.

Myglupróf
Ef ætlunin er að greina hvort svartur eða grænn flekkur sé mygla eða eitthvað annað, er hægt að fá vísbendingu um það með prótín- eða mygluprófi. Allar tegundir ,,skyndi“ mygluprófa þarf þó að nálgast með aðgát. Prótínpróf geta gefið falska jákvæða niðurstöðu enda svara þau öllum prótínum, og niðurstaðan verður „jákvæð“ í öllum tilfellum eftir 10 mínútur. Fölsk jákvæð niðurstaða getur komið fram ef sýni er mengað með snertingu eða svarar öðrum prótínleifum. Þess vegna er mikilvægt að lesa af þeim innan þess tímaramma, menga það ekki og velja góðan sýnatökustað. Mygluprófin sem greina ættkvíslir eða tegundir eru dýrari en eru gagnleg til þess að ákvarða ákveðnar ættkvíslir, en þau greina þó ekki allar tegundir og geta því sýnt neikvæða niðurstöðu þar sem er mygla. Þegar prótín- eða myglupróf gefa jákvætt svar er samt ekki hægt að draga þá ályktun um að raka- og mygluvandamál sé til staðar í húsnæði. Það eru margir þættir sem geta haft áhrif á niðurstöðuna og mikilvægasta skrefið er að finna orsökina.

Húseigendur geta yfirleitt framkvæmt slíka hreinsun sjálfir ef þeir fá góðar leiðbeiningar, hafa réttan útbúnað og efni. Hægt að er að nálgast leiðarvísi um hreinsun á litlu svæði og hvernig megi draga úr raka á vef Umhverfistofnunar graenn.is. Við stærri verkefni er mælt með að fagmenn sem þekkja til myglu vinni verkið.

Lagfæring
Þegar húsnæði er lagfært með tilliti til raka eða myglu þarf að ákveða hver tilgangurinn er með lagfæringunum og hvert markmiðið er. Ef markmiðið er að minnka heilsufarslega áhættu þá gildir fyrst og fremst að stöðva rakaupptök, minnka rakaálag og fjarlægja mygluð og rakaskemmd byggingarefni. Hreinsun með efnum, úðun eða þokun ein og sér dugar ekki til árangurs. Við ranga meðhöndlun getur vöxtur myglu og baktería og/eða framleiðsla eiturefna í sumum tilfellum aukist. Einföld þurrkun þar sem mygla er í vexti og lagfæring á rakavandamáli dugar heldur ekki. Mygla og afleiðuefni hennar geta valdið áreiti hvort sem hún er í dvala, dauð eða í fullu fjöri. Ekkert efni eitt og sér dugar til þess að gera út af við mygluna að fullu og ennþá síður til þess að fjarlægja afleiðuefni og myglusveppaeiturefni, svo vitað sé. Til þess að ná árangri við hreinsun á myglu þarf að kynna sér vel verkferla og aðferðir við slíka framkvæmd. Þar sem myglan er á litlu svæði eða samtals innan við 0,1 fm, eins og til dæmis við rúður, í hornum á milli útveggja (kuldabrýr) og í þéttiefnum á baðherbergjum þarf fyrst að huga að því að minnka líkur á krosssmiti, hvaða hlífðarfatnaður henti og síðan hvaða efni og áhöld duga. Nauðsynlegt er að nota ryksugu með HEPA síu allan tímann á meðan framkvæmdir standa yfir til þess að koma í veg fyrir frekari dreifingu gróa og agna. Því næst er sýnileg mygla fjarlægð með því að bursta, hefla, slípa, skera eða fjarlægja til dæmis málningu eða þéttefni. Að lokum er svæðið hreinsað vel og þá jafnvel með sótthreinsiefnum sem eru ekki ertandi fyrir íbúa.

Hvað get ég gert?
Fyrst og fremst þarf að tryggja stöðug loftskipti, fylgjast með loftraka innandyra, þurrka upp vatn við rúður ef þær „gráta“ og bregðast hratt og örugglega við vatnstjónum. Húseigendur þurfa ekki síður að sinna viðhaldi og gott er að hafa í huga að engin byggingarefni eru viðhalds- eða myglufrí. Forvarnir gegn slæmum loftgæðum innandyra felast meðal annars í því að opna glugga, tryggja loftskipti, velja rétt byggingarefni og málningu og síðast en ekki síst, halda húsum þurrum.